9. mars 2026
Samtök leigjenda á Íslandi (Leigjendasamtökin) boða hér með til aðalfundar félagsins.
Dagsetning: Tilkynnist síðar
Tími: Tilkynnist síðar
Staður: Tilkynnist síðar
Aðalfundur er haldinn samkvæmt 7. gr. laga félagsins og verður haldinn fyrir lok maí, með tveggja vikna lögboðnum fyrirvara og opinberri birtingu sbr. samþykktir.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar um starf og stöðu félagsins
- Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga
- Umræður um skýrslu og reikninga
- Lagabreytingar (ef fyrir liggja)
- Kosning stjórnar (5 aðalmenn)
- Kosning varamanna (5 varamenn)
- Kosning skoðunarmanna (2 einstaklingar)
- Önnur mál
Fundargögn verða gerð aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu samtakanna minnst þremur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðisréttur: Eingöngu félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld hafa atkvæðisrétt.
Fyrir hönd stjórnar SLÍ:
Yngvi Ómar Sigrúnarson