Verðsjá húsaleigu hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun

Húsnæðis og mannvirkjastofnun heldur úti verðsjá fyrir húsaleigu. Þar er hægt að sjá markaðsverð á húsaleigu miðað við skráða eða þinglýsta leigusamninga. Þú velur þær forsendur sem eiga við, stærð, aldur, tímabil, herbergjafjölda og staðsetningu og verðsjáin veitir upplýsingar um markaðsverð ef nægur fjöldi leigusamninga sem forsendurnar eiga við er í gagnagrunni verðsjár. Vísitala húsaleigu er byggð á verðsjá húsaleigu.


Verðsjá húsaleigu

Share by: